Við Djúpið 2024
Tónlistarhátíðin Við Djúpið fer fram á Ísafirði dagana 17.–22. júní 2024.
- Þýsk kammersveit sækir hátíðina heim
- Ísfirðingar áberandi í dagskránni í ár
- Bandarískri tónlist gert hátt undir höfði – tónskáldið Ellis Ludwig-Leone mætir
- Nýtt námskeið fyrir börn
Hæst ber koma þýsku kammersveitarinnar Orchester im Treppenhaus. Hljómsveitin, sem á heimilisfesti í Hannover, hefur getið sér einkar gott orð fyrir frísklega framkomu og fágaðan hljóðfæraleik. Hljómsveitin kemur bæði fram í minni hópum á tónleikum hátíðarinnar en einnig í heild. Tónlistarhátíðin Við Djúpið er að jafnði haldin þegar sól er hæst á lofti og á sumarsólstöðum leikur Orchester im Treppenhaus nýlega útsetningu hljómsveitarstjórans Thomasar Posth og Fynns Großmanns á Vetrarferð Franz Schuberts.
Það er Ísfirska sópransöngkonan Herdís Anna Jónasdóttir sem verður í förumannshlutverkinu í Vetrarferðinni en hún hefur áður komið fram með hljómsveitinni. Þó ekki í þessu verki en nýlega kom út hljómdiskur með flutningi sveitarinnar á útsetningu Posth og Großmanns. Koma hljómsveitarinnar og Herdísar er mikið gleðiefni en þótt ótúlegt megi virðast er þetta í fyrsta sinn sem Herdís Anna kemur fram á Við Djúpið.
Það kann að hljóma undarlega að flytja Vetrarferðina á hásumri og í stað þess að fara í felur með það verður minningin um veturinn ýkt enn frekar á hádegistónleikum sama dag þegar Sæunn Þorsteindóttir sellóleikari frumflytur á Íslandi nýtt verk Veronique Vöku, Neige éternelle (ísl. Eilífur snjór) í hádegistónleikaröð hátíðarinnar.
Meðal annarra er koma fram á hádegistónleikaröðinni má nefna harmonikuleikarann Goran Stevanovic frá Bosníu-Hersegóvínu og amerískt píanótríó úr Antigone–tónlistarhópnum.
Ísfirðingar áberandi
Herdís Anna er ekki eini Ísfirðingurinn sem er áberandi í dagskránni í ár. Tónskáldið Halldór Smárason sem einnig nam við Tónlistarskóla Ísafjarðar á bæði ný verk á tvennum tónleikum og kemur sjálfur fram. Tónskáldakollektif hans, Errata, býður upp á ný verk fyrir strengi á tónleikum 21. júní í flutningi Cauda Collective. Þeir tónleikar eru í samstarfi við Listahátíð í Reykjavík. Halldór kemur einnig fram á tvennum tónleikum sama dag ásamt tvífara sínum, bandaríska tónskáldinu Ellis Ludwig-Leone, fyrst í hádeginu og svo síðla kvölds á Dokkunni.
Námskeiðshald hefur frá upphafi verið burðarás í dagskrá tónlistarhátíðarinnar Við Djúpið og í ár kenna meðal annars meðlimir Orchester im Treppenhaus á kammertónlistarnámskeiði fyrir lengra komna hljóðfæranemendur. Í ár verður einnig kynnt til leiks nýjung í námskeiðahaldinu. Boðið verður upp á tónlistarleikjanámskeið fyrir börn þar sem árhesla er lögð á tónlistarleiki, söng, raddanir, aðferðir við að semja tónlist og spuna. Markmið námskeiðsins er að efla tónlistarþekkingu barna og kynna þeim nýjar og skemmtilegar hliðar tónlistarinnar. Það er Ísfirðingurinn Svava Rún Steingrímsdóttir og stallsystir hennar Katrín Karítas Viðarsdóttir sem leiða leikjanámskeið.
Fjölbreytt dagskrá
Alla hátíðardagana er boðið uppá að minnsta kosti tvenna tónleika og þegar nær dregur helgi fjölgar þeim. Tónleikarnir eru hver öðrum ólíkir, ný tónlist og gömul, flutt í stórum og smáum hópum. Á kvöldin fara tónleikar fram í Hömrum, sal Tónlistarfélags Ísafjarðar en hádegistónleikarnir fara fram í Bryggjusal Edinborgarhússins.
Auk tónleikasóknar geta gestir slegist í hóp annarra gesta og upplifað einstaka matarveislu eða siglt með tónlistarfólki á uppskeruhátíð i sjálfri perlu Djúpsins, Vigur.
Á tónlistarhátíðinni Við Djúpið myndast iðuglega einstök stemming þar sem flytjendur, nemendur og gestir umgangast og njóta samvista í tónlistarbænum Ísafirði þegar sól er hæst á lofti.
Gögn til niðurhals
Myndir af listamönnum
Myndir frá hátíðinni 2024
Hafa samband
Greipur Gíslason