
BJÖRN NYMAN
Column 1:
Björn Nyman frá Finnlandi lærði hjá Hans Christian Bræin og Leif Arne Petersen í Norska tónlistarháskólanum og Yehuda Gilad í University of Southern California i Los Angeles. Hann kennir nú við Norska tónlistarháskólann í Ósló.
Björn var aðeins 19 ára þegar hann fyrst hlaut stöðu klarinettleikara við Kammersveit Lapplands. Þá hefur hann leikið með Gustav Mahler Jugendorchester undir stjórn bæði Pierre Boulez og Claudio Abbado.
Björn Nyman er án vafa einn af fremstu klarinettleikurum á norðurlöndunum og vinsæll einleikari. Hann hefur meðal annars komið fram sem einleikari með Norsku útvarspshljómsveitinni, Sinfóníuhljómsveit Óðinsvéa, Bayeriche Rundfunk, Fílharmóníuhljómsveitinni í Björgvin, Kammersveitinni í München og sinfóníunni í Stavangri. Í janúar á þessu ári frumflutti hann klarinettukonsert eftir Jan Erik Mikalsens sem var skrifaður fyrir hann og Norsku útvarpshljómsveitina. Hann leikur nú sem sólóklarinettleikari með Norsku útvarsphljómsveitinni og Norsku kammersveitinni.
Björn Nyman er virkur í flutningi kammertónlistar og hefur komið fram á hátíðum eins og Risør kammertónlistarhátíðinni, Korsholm tónlistarhátíðinni, Kammertónlistarhátíðinni í Ósló, Tónlistarhátíðinni í Røros og Gloger-tónlistarhátíðinni. Upptaka hans fyrir útgáfufyrirtækið 2L, þar sem hann leikur tónlist Bartóks ásamt Annar Follesø og Christian Ihle Hadland, hefur hlotið fádæma viðtökur um allan heim.
Björn Nyman hefur hlotið verðlaun í tveimur virtustu alþjóðlegu keppnunum fyrir klarinettleikara; ARD - keppninni í München árið 2003 og Carl Nielsen – keppninni í Óðinsvéum 2005. Í bæði skiptin fékk hann einnig verðlaun fyrir túlkun sína á klarinettukonserti Mozarts. Björn hlaut fyrstu verðlaun í hinni virtu Crusell – keppni árið 2002 og sama ár vann hann Concoco Phillipps verðlaunin.
Column 2:
The Finnish Clarinetist Björn Nyman studied with Hans Christian Bræin and Leif Arne Petersen at the Norwegian State Academy of Music and with Yehuda Gilad at the University of Southern California in Los Angeles. He currently teaches at the Norwegian State Academy of Music in Oslo.
Björn held the position of principal clarinetist in the Lapland Chamber Orchestra when he was only 19 years old. He has performed as soloist with the Gustav Mahler Youth orchestra under the direction of Pierre Boulez and Claudio Abbado and was the principal clarinetist of the orchestra for several years.
Björn has performed widely as soloist and is since 2004 Principal Clarinetist of the Norwegian Radio Orchestra. In January this year he premiered a Concerto for clarinet, composed for him and the Norwegian Radio Orchestra by Jan Erik Mikalsen.
Björn has been an active chamber musician and performs regularly with the Norwegian Chamber Orchestra. He has performed at various festivals, such as the Risør Chamber Festival, The Korsholm Music Festival, The Oslo Chamber Music Festival, The Røros Music Festival and the Gloger Music Festival. The recordings that he made of Bartók´s music with Annar Follesø and Christian Ihle Hadland for the label 2L have received international critical acclaim.
Björn Nyman is a prize winner in two of the world’s most important clarinet competitions: the Carl Nielsen competition in 2005 and the ARD competition in Munich in 2003. Both times he also recieved a special prize for his interpretation of Mozart´s clarinet concerto.
Column 3:

Björn Nyman
