
AUDUN HALVORSEN
Column 1:
Audun Halvorsen er fæddur árið 1979 og ólst upp í Haugasundi á vesturströnd Noregs. Hann hóf tónlistarnám sitt hjá Robert Rønnes en hélt síðar til náms við Norges Musikk Högskole hjá Eirik Birkeland og Knut Sønstevold. Ole Kristian Dahl hefur síðan verið kennari hans frá 2001. Audun starfar nú sem leiðari fagottsveitarinnar við Dönsku þjóðarhljómsveitina í Kaupmannahöfn.
Audun hlaut sína fyrstu leiðarastöðu árið 2001, þá við Sinfóníuhljómsveitina í Nörrköping. Árið 2002 gegndi hann leiðarastöðu við Norsku óperuna í Ósló. Í kjölfarið, á árunum 2005 – 6 leiddi hann fagotthópinn í Fílharmóníuhljómsveit Rotterdam. Nýlega sigraði hann samkeppni um stöðu leiðara við NDR sinfóníuna í Hamborg.
Audun Halvorsen hefur að auki leikið sem gestaleiðari við Sinfóníuhljómsveit Lundúna, NDR sinfóníuna í Hamborg, Óslóarfílharmóníuna, Sænsku útvarpshljómsveitina, Sinfóníuhljómsveit Gautaborgar og Fílharmóníuhljómsveitina í Björgvin í Noregi.
Audin kom fyrst fram sem einleikari árið 2003, þá með Sinfóníuhljómsveitinni í Stavangri. Í kjölfarið kom hann fram með Sinfóníuhljómsveitinni í Norrköping og Norsku útvarpshljómsveitinni ásamt Dönsku þjóðarhljómsveitinni. Audunn er virkur í flutningi kammertónlistar og hefur komið fram á hátíðum í Finnlandi og í Noregi.
Árið 2003 vann Audun Halvorsen „Crusell Bassoon“ keppnina í Uusikaupunki í Finnlandi. Sama ár hlaut hann „Norsku Shell verðlaunin“.
Column 2:
Audun Halvorsen, born 1979, grew up in Haugesund on the west coast of Norway. He started his studies with Robert Rønnes and continued in the Norwegian State Academy of Music with Eirik Birkeland and Knut Sønstevold. Ole Kristian Dahl has been his teacher and mentor since 2001. He is currently Principal Bassoon in the Danish National Symphony Orchestra DR in Copenhagen.
Audun got his first job as Principal Bassoonist in the Norrköping Symphony Orchestra in 2001. During 2002 he also held the same position at the Norwegian Opera, Oslo, followed by Rotterdam Philharmonic Orchestra 2005-06. Audun Halvorsen has recently won the audition for the Principal Bassoon seat in NDR, Hamburg.
As guest principal he has also appeared with orchestras such as London Symphony Orchestra, NDR Symphony Orchestra Hamburg, Oslo Philharmonic Orchestra, Swedish Radio Symphony Orchestra, Gothenburg Symphony Orchestra and Bergen Philharmonic Orchestra.
He did his solo debut in 2003 with Stavanger Symphony Orchestra as ”The Young Musician of the Year”, followed by solo appearances with Norrköping Symphony Orchestra, Norwegian Radio Symphony Orchestra and the Danish National Symphony Orchestra DR in Copenhagen. Audun is an active chamber musician, and has participated in chamber music festivals in Finland and Norway. -
In 2003 he won the ”Crusell Bassoon Competition” in Uusikaupunki in Finland, and was also given the ”Norwegian Shell prize”.
Column 3:

Audun Halvorsen
