
LEIT AÐ NÝJUM TÓNSKÁLDUM 2010
Column 1:
Tónlistarhátíðin Við Djúpið stendur nú öðru sinni fyrir viðamikilli leit að nýjum tónskáldum. Að þessu sinni er verkefnið í samstarfi við Rás 1 og tónlistarsjóðinn Kraum.
Nýjum tónskáldum var boðið að senda inn umsóknir til þátttöku. Sérstök dómnefnd valdi þrjá þátttakendur sem boðin var þátttaka. Í því fellst að þau semja verk fyrir blásarakvintett.
Af því tilefni hefur Nordic Chamber Soloist hópurinn verið ráðinn til samstarfs en hann æfir verkin undir vökulu auga hinna nýju tónskálda meðan á tónlistarhátíðinni Við Djúpið stendur á Ísafirði. Verkin verða síðan frumflutt á sérstökum lokatónleikum hátíðarinnar 27. júní 2010.
Tilgangurinn er að gefa ungum tónskáldum tækifæri til að vinna mjög náið með reyndum tónlistarmönnum, mun nánar en undir venjulegum kringumstæðum. Það var tónlistarhátíðinni og samstarfsaðilum mikil ánægja að geta fylgt verkefninu eftir og endurtekið leikinn frá því í fyrra.
Column 2:
Column 3:
DÓMNEFND
Dómnefndinna skipuðu:
Daníel Bjarnason, tónskáld, formaður (nánar)
Dagný Arnalds, listrænn stjórnandi tónlistarhátíðarinnar Við Djúpið (nánar)
Stefán Jón Bernharðsson, hornleikari
Þuríður Jónsdóttir, tónskáld
Ólafur Óskar Axelsson, tónskáld
REGLUR OG LEIÐBEININGAR
Í samkeppninni var notast við ákveðnar reglur. Þær má finna hér.